Er þetta gluggaveður?
Sólin skín inn um gluggann, en hvað segir mælirinn? Gluggaveður sýnir nýjustu mælingar frá næstu veðurstöð og spá Veðurstofu Íslands fyrir næstu klukkustundir og daga.
Væntanlegt á App StoreFyrir iPhone, iPad og Apple Watch, á íslensku og ensku.

Næstu tímar og dagar
Klukkustundaspá, tíu daga spá og textaspá Veðurstofunnar fyrir landshlutann. Pikkaðu á dag til að sjá hita, vind og úrkomu dagsins á grafi.
Strjúktu á milli næstu stöðvar og uppáhaldsstöðva. Himinninn á bak við spána fylgir veðrinu á stöðinni og tíma dags.

Landið allt á einu korti
Nýjustu mælingar frá veðurstöðvum um allt land, og spákort fyrir vind, úrkomu og hita. Tímalínan spilar spána áfram klukkustund fyrir klukkustund.
Spákortin byggjast á HARMONIE-líkani Dönsku veðurstofunnar (DMI).

Líka á heimaskjánum og úlnliðnum
Græjur sýna veðrið þar sem þú ert, og sú stærsta sýnir textaspána líka. Á Apple Watch raðast spá næstu tólf klukkustunda hringinn í kringum skífuna.
Tilkynningar geta látið þig vita af viðvörunum, marktæku veðri og norðurljósum, og sent daglega spá á þeim tíma sem þú velur. Slökkt er á þeim öllum þar til þú kveikir á þeim.



Norðurljós í kvöld?
Norðurljósaspá Veðurstofunnar fyrir næstu nætur, með upplýsingum um myrkur, tunglfasa og hvenær tunglið rís og sest.
Kveiktu á tilkynningum og Gluggaveður lætur þig vita þegar góðar líkur eru á norðurljósum.

Gluggaveður
Væntanlegt á App Store.